Ný Cleopatra 33 til Mæris í Noregi
Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Vågstranda sem er sveitarfélag í Mæri og Raumsdal í Noregi. Kaupendur bátsins eru feðgarnir Johan og Tobias Solgård. Tobias er skipstjóri á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið Bajas. Báturinn mælist 11 brúttótonn. Bajas er af gerðinni Cleopatra 33. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 500hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC og Furuno.
Báturinn er einnig útbúinn með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er sérútbúinn til gildruveiða á humri.
Spilbúnaður og gildruborð er útfært af Trefjum. Í lestinni er úðunarkerfi til að halda humri lifandi sem eykur aflaverðmæti til muna
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Lestin er útbúinn fyrir 12 380 lítra kör eða fleiri minni kassa. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og salerni með sturtu. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.