Samningur við Breta endurnýjaður

Deila:

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og Tim Lowe, aðmíráll og yfirmaður UKHO, bresku sjómælinganna, skrifuðu á dögunum undir endurnýjaðan tvíhliða samning um áframhaldandi samstarf á sviði sjókortagerðar.

Samningurinn tekur m.a. á skiptum á upplýsingum og reynslu er snýr að útgáfu sjókorta. Markmið með samningnum er einnig að auka öryggi sjófarenda og verndun umhverfisins. Landhelgisgæslan og UKHO hafa átt í nánu samstarfi á þessu svið í ríflega tvo áratugi sem m.a. hefur snúið að þjálfun starfsmanna Landhelgisgæslunnar, samskiptum við þriðja aðila er lýtur að höfundarréttarmálum og dreifingu á rafrænum sjókortum.

Deila: