Tveir í breytingum og tveir í smíðum

Deila:

Mikið er um að vera hjá Skinney-Þingnesi um þessar mundir. Félagið er með tvo togbáta í lengingu í Póllandi og tvö ný togskip eru í smíðum í Noregi. Auk þess er verið að taka í notkun nýja vinnslulínu fyrir ferskfisk í fiskvinnunni á Hornafirði.

Tveir lengdir í Póllandi

„Við erum að láta breyta togbátunum Skinney og Þóri í Póllandi. Þeir verða lengdir um 8,5 metra og er tilgangurinn fyrst og fremst bæta meðferð á aflanum, bæði á bolfiski og humri. Settar verða upp nýjar vinnslulínur á millidekkið og í leiðinni eykst lestarplássið gríðarlega. Við ætlum að ná verulega bættum árangri, sérstaklega í humrinum. Þess báta á að afhenda 28. febrúar og 16. mars. Við vonumst þá til að komast beint á humarveiðar. Hafró hefur þó reyndar ekki enn skilað sínum tillögum til sjávarútvegsráðuneytisins um það hvernig humarveiðum verði háttað í ár. Þar er því nokkur óvissa, en veiðarnar gengu ekkert sérstaklega vel síðastliðið sumar,“ segir Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða og vinnslu hjá Skinney-Þinganesi.

Ásgeir Gunnarsson framkvæmdastjóri veiða og vinnslu hjá Skinney-Þinganesi á Höfn í Hornafirði

Nýsmíðar afhentar í lok árs

Skinney-Þinganes er að auki að láta smíða tvo nýja 29 metra langa og 12 metra breiða togbáta í Vard í Noregi. „Skrokkarnir eru reyndar smíðaðir í stöð sem þeir eiga út í Vietnam og verða fluttir þaðan með skipi um miðjan febrúar og kláraðir í Auka í Noregi. Þar verður sett vél í bátana og annar búnaður og þeir innréttaðir. Við eigum að fá þá afhenta í lok árs, í nóvember og desember. Þá verðum við komnir með þann flota sem við ætlum að gera út næstu árin á botnfiski og humri. Við stefnum því á að stýra þessum veiðum með fjórum togskipum næstu árin. Nú gerum við út fimm togskip þannig að ætlunin er að selja þrjú af þessum gömlu,  Hvanney, Þinganes og Steinunni.“

Hugsað til langs tíma

Ásgeir segir að þetta sé umtalsverður „pakki“ og mikið að gerast á stuttum tíma. Það sé dýrt að smíða ný skip, sérstaklega þegar vel sé vandað til verks. Því miður hafi orðið töluverð seinkun á breytingu skipanna úti í Póllandi. En þau hafi átt að koma byrjun janúar og um miðjan mánuðinn. „Það setur okkur svona í aðeins vandræði að fá þessa seinkun á okkur. Við verðum bara að vinna með því, en við erum ennþá með gömlu bátana í rekstri, en þeir detta út einn af öðrum, þegar líður á árið. Með þessu erum við að hugsa til langs tíma og ekki þurfi að huga mikið að þessum flota næsta áratuginn eða svo.“

Ný vinnslulína tekin í notkun í mars

Ásgeir segir að nokkrar breytingar séu að ganga yfir í sjávarútveginum. „Við finnum það að kvótar í mörgum tegundum sem eru okkur mikilvægir eru að minnka eins og í humri og síld. Kvótar bæði á íslensku síldinni og norsk-íslensku síldinni eru í lágmarki og humarveiðar gengu illa í fyrra. Að öðrum kosti hefur árið gengið ágætlega.

Við erum líka að byggja upp ferskfiskvinnslu hérna á Hornafirði. Erum að taka í notkun nýja línu frá Marel í mars. Það er þess vegna mikið undir hjá okkur á þessum tveimur árum, 2018 og 20 19 og þegar þessar breytingar hafa gengið í gegn lítum við björtum augum til framtíðarinnar,“ segir Ásgeir.

Auk þessara skipa gerir Skinney-Þinganes út bátinn Vigur í litla kerfinu og uppsjávarveiðiskipin Ásgrím Halldórsson og Jónu Eðvalds. Skinney-Þinganes rekur bolfisk-, humar-, uppsjávarvinnslu  og  fiskimjölsverksmiðju á Hornafirði og ferskfiskvinnslu í Þorlákshöfn.
Viðtalið birtist fyrst í nýjasta tölublaði Ægis.

 

Deila: