Skipin farin á kolmunna

Deila:

Uppsjávarskipin Beitir NK, Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK héldu öll til kolmunnaveiða frá Neskaupstað sl. laugardag. Íslensk skip eru þegar komin á miðin og hafa verið að fá nokkurn afla síðustu daga.

Heimasíða Síldarvinnslunnar hafði samband við Tómas Kárason, skipstjóra á Beiti, áður en skipið lét úr höfn. Tómas sagði að fátt annað væri að gera en halda til kolmunnaveiða fyrst ekki tækist að ná utan um loðnuna við landið með mælingum. „Við væntum þess að kolmunninn fari að gefa sig og veður haldist sæmilegt. Íslensku skipin eru nú að veiðum vestur af syðsta odda Írlands og þangað tekur eina þrjá sólarhringa að sigla en þetta eru um 900 mílur. Það er orðin hefð að tala um að fara á Rockall svæðið en staðreyndin er sú að það er miklu norðar því Rockall er vestur af Skotlandi. Norðmenn eru nú að veiða um 180 mílum norðar en íslensku skipin en þeir eru þar í Evrópusambandssjó. Þegar líður á vertíðina færist veiðin norður eftir og vonandi verður búið að semja við Færeyinga þegar kolmunninn gengur inn í færeyska lögsögu í maímánuði. Þeir samningar eru okkur gríðarlega mikilvægir,“ sagði Tómas.

Mynd: Beitir NK er á leiðinni til kolmunnaveiða vestur af Írlandi.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason

 

Deila: