Marel veitir starfsmönnum kauprétti

Deila:

Stjórn Marel hf. ákvað þann 12. febrúar 2019 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 3,75 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 2. mars 2017 í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdarstjórnar félagsins.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,25 á hlut.1 Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs árið 2022. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2023, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 15,7 milljónum hluta, sem nemur um 2,3% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

 

Deila: