Drög að reglugerð um bann við álaveiðum

Deila:

Nú liggja fyrir á samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um bann við álaveiðum sem áformað er að setja. Markmið með setningu þessarar reglugerðar nú er að að vernda álastofninn hér á landi gegn ofveiði. Samkvæmt reglugerðardrögunum er gert ráð fyrir að allar álaveiðar verði óheimilar hér á landi, með tilteknum undantekningum þar sem gert er ráð fyrir að hægt verði að veita leyfi til veiða á áli til eigin neyslu.

Með lögum nr. 29/2018, um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, var lögfest ákvæði sem varð 2. mgr. 20. gr. laganna þess efnis að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra geti með reglugerð sett reglur um álaveiðar, m.a. um að banna eða takmarka álaveiðar um allt land eða á tilteknum svæðum ef það er talið nauðsynlegt að mati Hafrannsóknastofnunar.

Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um ál barst ráðuneytinu með bréfi stofnunarinnar, dags. 22. júní 2018.

Í henni kemur fram m.a. að álastofninn sé í hættu og þoli illa veiðar. Meðan svo er sé það ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar að bann verði sett á allar álaveiðar hér á landi. Jafnframt að ef áll veiðist í silungs- eða laxveiðiám verði skylt að sleppa honum. Hafrannsóknastofnun leggi til við ráðuneytið að það beiti sér fyrir slíkri alfriðun sem standi á meðan ástand stofnsins sé undir settu viðmiði. Í tilvikum þar sem sýna megi fram á að álaveiðar hafi verið eða verði stundaðar sem búsílag verði heimilt að sækja um undanþágu frá banni við álaveiði til eigin neyslu. Það leyfi verði háð því skilyrði að inn verði sendar skýrslur um sókn og afla í veiðunum. Með því móti megi fá frekari upplýsingar um fjölda þeirra sem hafi stundað álaveiðar, fá fram afla á sóknareiningu, landsvæði, afla og mögulega fá sýni af veiddum fiskum til frekari rannsókna. Þannig fáist frekari upplýsingar um veiðarnar og ástand álastofnsins hér á landi sem geti orðið grunnur að endurskoðun á ráðgjöf um álaveiðar ef tilefni verður til þess.

Lagt er til að farið verði eftir þessari ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og reglugerðardrög þau sem hér eru birt til umsagnar eru í samræmi við hana.

 

Deila: