Bjartsýnn á að meiri loðna finnist

Deila:

Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar á miðvikudag í þeim tilgangi að sækja loðnunót, en skipið hefur að undanförnu sinnt loðnuleit við landið í samstarfi við Hafrannsóknastofnun. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Geir Zoëga skipstjóra og spurði hann hvers vegna veiðarfærið væri sótt.

„Við höfum verið að sinna loðnuleit fyrir sunnan land síðustu daga. Þar er loðna á ferðinni og ég trúi því að ef finnst meiri loðna fyrir norðan og út af Vestfjörðum þá verði gefinn út einhver kvóti. Við erum einmitt núna að halda norður fyrir land í frekari leit. Ef eitthvað finnst fyrir norðan og vestan og kvóti verður gefinn út þá mega menn engan tíma missa. Þess vegna tökum við nótina um borð. Við ætlum að vera tilbúnir að hefja veiðar strax og við ætlum að verða fyrstir til að kasta.

Ég er mjög bjartsýnn á að finnist meiri loðna. Það hafa borist einhverjar fréttir frá skipum fyir norðan þannig að bjartsýni mín er rökstudd. Sannleikurinn er sá að það þýðir ekkert að vera svartsýnn og sjá allt dökkt framundan. Það hafa engir verið jafn iðnir við loðnuleit að undanförnu og við á Polar Amaroq og ég trúi því að það eigi eftir að finnast meiri loðna og sú trú er nokkuð sterk. Það var unaðslegt að taka nótina um borð. Ég fyllist alltaf ákveðinni vellíðunartilfinningu þegar nótaveiðar eru að hefjast og það þýðir ekkert annað en að trúa því að það sé að fara að gerast,“ segir Geir.

Deila: