Varað við hárri sjávarstöðu

Deila:

Landhelgisgæslan vekur athygli á sérlega hárri sjávarstöðu næstu daga, en stórstreymt er á föstudaginn. Þá gerir veðurspá ráð fyrir hvössum suðvestan- og vestanáttum og hárri ölduhæð vestur af landinu fram á daginn í dag.

Samkvæmt sjávarfallaútreikningum sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar Landhelgisgæslunnar verður morgunflóð í Reykjavík í dag og föstudag 4,4 metrar og á Ísafirði verður morgunflóðið 2,4 metrar sömu daga. Vindáhlaðandi og há ölduhæð geta haft áhrif til hækkunar sjávarstöðu umfram þessa útreikninga.

 

Deila: