Birta upplýsingar um aflasamsetningu grásleppubáta

Deila:

Fiskistofa hyggst birta reglulega upplýsingar um aflasamsetningu á hinum ýmsu tegundum veiða eftir því hvort eftirlitsmenn stofnunarinnar voru með í för eða ekki. Ákveðið hefur verið að byrja með því að birta upplýsingar um aflasamsetningu í grásleppuveiði á síðasta ári. Eins og með aðrar nýjungar í samantekt á upplýsingum af þessu tagi á vef Fiskistofu kemur ekki fram um hvaða skip er að ræða að þessu sinni.  Stofnunin mun framvegis birta samantektir af grásleppuveiðum reglulega og má þá búast við að gefið verði upp um hvaða báta er að ræða í hverju tilfelli.

Ástæður breytilegrar aflasamsetningar geta verið margvíslegar. Aðstæður í hafinu geta verið ólíkar hverju sinni og ætlun útgerðar og skipstjórnarmanna getur verið mismunandi frá einni veiðiferð til annarrar.  Það er m.a. hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að ekki komi til brottkasts. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og skipstjórnarmenn, áhættugreiningu og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla. Þannig telur Fiskistofa að hún ræki hlutverk sitt að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafs og vatna.

Fiskistofa birtir hér niðurstöður um magn og fjölda fisktegunda í veiðiferðum grásleppubáta á síðasta ári. Í þeim gögnum sem hér eru tekin saman og birt er borin saman aflasamsetningin á sama bát á sams konar veiðum eftir því hvort veiðieftirlitsmenn Fiskistofu voru um borð eða ekki. Valdar voru allar veiðiferðir grásleppubáta með viðveru eftirlitsmanna um borð á tímabilinu 23. til 31. mars 2018. Birtar eru upplýsingar um landaðan afla í tveimur veiðiferðum sama báts á undan og á eftir ferðinni með eftirlitsmanninum að því gefnu að farnar hafi verið tvær fyrri veiðiferðir.

Hér er að finna upplýsingar um aflasamsetningu 13 grásleppubáta

Myndin hér að neðan sýnir sem dæmi aflasamsetningu eins grásleppubáts.

Allar aflatölur eru í kg upp úr sjó.

 

Deila: