Greiða fyrir skil á merktum hrognkelsum

Deila:

Greiddar verða 5.000 krónur fyrir hvert heilt hrognkelsi með merki, sem berst til BioPol á Skagaströnd. Merkingar á hrognkelsum eru liður í nánari rannsóknum á þeim.

Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi með merkingar á hrognkelsum. Árið 2018 voru merkingar framkvæmdar með tvennum hætti. Annars vegar um 200 fiskar á hefðbundinni veiðislóð inni á Húnaflóa og hins vegar um 290 ungir fiskar í alþjóðlegum makríl leiðangri norður og suður af Íslandi og við austurströnd Grænlands.   Ekki er vitað til þess að ungviði hafi áður verið merkt með þessum hætti áður en hugsanlegar endurheimtur geta gefið mjög mikilvægar upplýsingar um vaxtarhraða hrognkelsa og hvert þau ganga til hrygningar.

„Ef þú veiðir merktan fisk vinsamlegast hringdu í númerið sem er á merkinu ( 896-7977) og tilkynntu staðsetningu. Ekki fjarlægja merkið en komið fiskinum sem fyrst í frysti og í kjölfarið verður reynt að nálgast hann. Verðlaun verða einungis greidd ef fiskurinn skilar sér í heilu lagi og merkið er enn til staðar á honum.

Í umræddum makrílleiðöngrum hafa hrognkelsi veiðst sem meðafli í efstu lögum sjávar á hafsvæði sem nær frá austur Grænlandi, allt í kringum Ísland og norður með Noregi.  Ekki er ljóst hvar þessi fiskur hrygnir og hversu mörgum árum hann eyðir á þessum slóðum áður en hann kemur til hrygningar og hversu gamall hann verður.

Endurheimtur á merktum fiskum munu hugsanlega hjálpa til við að svara þessum spurningum,“ segir í tilkynningu frá Hafró og BioPol.

 

Deila: