Flytja út frauðplast til endurvinnslu

Deila:

HB Grandi og Norðanfiskur stíga vistvæn skref með Íslenska gámafélaginu og Samskipum. Í gær undirrituðu þessi fyrirtæki yfirlýsingu um endurvinnslu og útflutning frauðplasts.

Verkefnið byggir á frauðpressuvél sem staðsett er í Kistunni, sorpflokkunarstöð HB Granda á Akranesi, en félagið rekur sínar eigin sorpflokkunarstöðvar á öllum þremur starfsstöðum félagsins, í Reykjavík, á Akranesi og Vopnafirði. Pressuvélin minnkar ummál fiskikassanna um 95% og með því gefst tækifæri til þess að flytja plastið til endurvinnslu erlendis.

Á umhverfissýningu í Munchen síðsta vor komst HB Grandi, ásamt Íslenska gámafélaginu, í kynni við kínverskt fyrirtæki sem hafði áhuga á því að kaupa allt frauðplast sem til félli í starfsemi félagsins. Með samstarfi HB Granda, Norðanfisks, Íslenska gámafélagsins og Samskipa var fluttur út í gær fyrsti gámurinn með 7 tonnum af pressuðu frauðplasti, til Malasíu, þar sem efnið verður notað til að framleiða meðal annars mynda- og speglaramma.

Frá undirritun samningsins frá vinstri: Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa, Sigurjón Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri Norðanfisks og Jón Þórir Franzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins.

Með þessu verkefni er lagður grunnur að raunhæfri lausn til að endurnýta úrgang og skapa verðmæti. Markmið allra þriggja fyrirtækjanna er að vera leiðandi í umhverfismálum.

Þetta er eitt af fjölmörgum verkefnum sem hafa verið í gangi hjá HB Granda sem snúa að umhverfismálum. Önnur samfélagsskýrsla HB Granda verður gefin út 29.mars þar sem fjallað er um útflutning á frauðplasti og fjölmörg önnur umhverfis og samfélagstengd verkefni. Að mörgu er að hyggja í þessum efnum og mikilvægt að vera vakandi fyrir áhugaverðum tækifærum sem geta dregið úr kolefnisfótspori fyrirtækja.

Markmið Íslenska Gámafélagsins er að vera leiðandi á sviði umhverfismála í sorphirðu, endurvinnslu og endurnýtingu. Félagið býður snjalla hugbúnaðartæknilausn sem auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að umhverfisvæða og rafvæða í rauntíma allar skráningar sorps og endurvinnslu hráefna.

Samskip hafa markað skýra stefnu í umhverfismálum, ekki aðeins í samræmi við samfélagslega ábyrga starfshætti félagsins heldur gengur viðskiptamódel félagsins enn lengra en kröfur samfélagsins gera.

Samskip og HB Grandi eru félagar í Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð. Jafnframt er Samskip einn af stofnendum Votlendissjóðsins en einna mikilvægasti þátturinn í umhverfismálum Samskipa eru fjölþátta flutningar.

 

 

Deila: