Kolmunnaskipin halda til veiða

Deila:

Kolmunnaskipin sem legið hafa í Norðfjarðarhöfn að undanförnu halda nú til veiða í færeysku lögsöguna hvert af öðru. Polar Amaroq lét úr höfn um hádegi á mánudag og Beitir NK í gærmorgun. Gert er ráð fyrir að Bjarni Ólafsson AK sigli í kjölfar þeirra á fimmtudag. Börkur NK er hins vegar í slipp á Akureyri og mun væntanlega ekki fara niður fyrr en á fimmtudag.

„Samkvæmt nýjustu heimildum eru heldur litlar fréttir af veiði í færeysku lögsögunni. Þar eru rússnesk og færeysk skip að veiðum eins og er,“ segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

 

 

Deila: