Strandveiðar hefjast í vikunni

Deila:

Nokkrir dagar eru í að strandveiðar hefjist.  2. maí er upphafsdagur þeirra í ár.  Veiðarnar verða með líku sniði og á síðasta ári.  12 veiðidagar í mánuði þar sem heimilt verður að róa fjóra daga í viku mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag.

Sérstaklega er vakin athygli á að ef hefja á veiðar 2. maí þá skal umsókn hafa borist Fiskistofu fyrir kl 15:00 þann 30. apríl og greiðsluseðil þarf að greiða fyrir kl 21:00 þann sama dag.

„Rétt er að vekja athygli á að ein breyting var gerð á fyrirkomulagi veiðanna frá í fyrra.  Hún felst í að heimilt verður að segja sig frá strandveiðum og hefja veiðar samkvæmt almennu veiðileyfi í byrjun næsta mánaðar eftir tilkynningu,“ segir í Frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Nánar verður kveðið á um dagsetningar í reglugerð sem væntanleg er á næstu dögum.

 

 

Deila: