Slippurinn Akureyri með vinnsludekk í Vestmannaey og Bergey

Deila:

Slippurinn Akureyri og Bergur-Huginn dótturfélag Síldarvinnslunnar hafa gert samkomulag þar sem Slippurinn mun bera ábyrgð á vinnsludekkjum um borð í nýju ísfiskurunum Vestmannaey VE og Bergey VE. Skipin, sem smíðuð eru af norsku skipasmíðastöðinni Vard, eru 29 metrar að lengd og 12 metrar að breidd og taka um 80 tonn af ísuðum fiski í lest. Slippurinn mun bera ábyrgð á heildarlausn í skipunum, allt frá því að fiskurinn kemur um borð og þar til hann er kominn í kör niður í lest.

„Á vinnsludekki skipanna verður komið fyrir afkastamikilli aðgerðarlínu ásamt öflugum búnaði til blóðgunar og kælingar sem tryggir góða meðhöndlun á fiskinum. Einnig verður rúlluflokkari um borð sem mun gróf-flokka fiskinn áður en hann fer niður í lest. Við hönnun á vinnsludekkinu var lögð áhersla á góða lausn sem tryggir framúrskarandi gæði hráefnis, auðvelt aðgengi að þrifum og góða vinnuaðstöðu. Öll hönnunarvinna var unnin í nánu samstarfi við útgerðina og gekk vel “ segir Ólafur Ormsson, sviðsstjóri hjá Slippnum á Akureyri í viðtali við heimasíðuna.

„Samstarfið við Slippinn á Akureyri hefur gengið vel og miklar væntingar bundnar við nýju skipin. Við sjáum fram á meiri afköst í bæði veiðum og vinnslu og erum fullvissir um að gæði aflans úr þessum skipum verða fyrsta flokks” segir Guðmundur Alfreðsson útgerðarstjóri Bergs-Hugins.

Áætlað er að uppsetning á vinnslubúnaðinum í Vestmannaey fari fram um miðjan júlí og Bergey seint í haust.

 

Deila: