Makrílveiðar smábáta gætu heyrt sögunni til

Deila:

„Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það fækka enn frekar þeim smábátum sem möguleika hafa á að stunda makrílveiðar.  Það mun skaða vöxt og viðgang smábátaútgerðar og draga enn meir úr möguleikum hinna dreifðu byggða að nýta hinn nýja gest í íslenskri lögsögu til atvinnusköpunar og hámarks verðmæta.  Sú hætta er raunveruleg að makrílveiðar smábáta, nýting grunnslóðar og framboð á hágæða makríl muni nánast heyra sögunni til.“

Svo segir í umsögn Landssambands smábátaeigenda um stjórnarfrumvarp um stjórn veiða á makríl, sem atvinnuveganefnd Alþingis er nú til meðferðar  Frumvarpið er frá Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.   Nefndin óskaði umsagnar hagsmunaaðila um frumvarpið og bárust henni erindi frá 6 aðilum.

Farið er yfir málið á heimasíðu LS og segir þar svo:

Landssamband smábátaeigenda hafði áður skilað inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda um drög að frumvarpinu.  Það kom þó ekki í veg fyrir að LS sendi atvinnuveganefnd ítarlega umsögn um sjálft frumvarpið. Í upphafi umsagnarinnar er vakin athygli á samþykktum aðalfundar og stjórnar LS um málefnið.

Þá segir eftirfarandi í umsögn LS

„LS óskar eftir að samhliða frumvarpinu verði gerðar eftirtaldar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 með síðari breytingum:

 

  1. Ákvæði til bráðabirgða VIII gildi til ársins 2023 og í stað 2.000 lesta af makríl til smábáta komi 4.000 lestir í þeirra hlut.

 

  1. Við 11. gr. bætist ný málsgrein sem verði nr. 9 sem orðist svo:  Bátar styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn að stærð, sem stunda veiðar með línu og handfærum skal heimilað á hverju fiskveiðiári að veiða 5,3% af leyfilegum heildarafla í makríl.

 

  1. Við 1. málslið 5. mgr. 8. gr. bætist við eftirfarandi: , til makrílveiða skv. 9. mgr. 11. gr.

 

  1. Að viðmiðunartími veiðireynslu smábáta verði 2013 – 2018 og þrjú bestu árin valin.

 

  1. Skipting heildarafla í makríl verði skipt milli tveggja flokka skipa.
  2. Til uppsjávarskipa
  3. Til smábáta sem veiða með línu eða handfærum

Óheimilt verði að færa aflaheimildir frá færabátum til uppsjávarskipa“.

Umsögnin í heild

 

 

Deila: