Samið við Rússa um þorskveiðar í Barentshafi

Deila:

Samið hefur verið við Rússa um veiðar íslenskra skipa innan lögsögu þeirra í Barentshafi. Á móti fá Rússar að veiða tiltekið magn af makríl og kolmunna innan lögsögu okkar.

Dagana 7.-8. maí sl. var haldinn fundur í Moskvu í fiskveiðinefnd Íslands og Rússlands um fiskveiðisamning fyrir árið 2019, svokallaðan „Smugusamning“ sem í þessu tilviki snýst um þorskveiðar Íslands í rússneska hluta Barentshafsins.

Samningar tókust milli þjóðanna. Samningurinn felur í sér að íslensk fiskiskip geta veitt 6.592 tonn af þorski í rússneska hluta Barentshafsins 2019 auk allt að 1.978 tonna af öðrum tegundum, en þar af getur þó ýsuafli aldrei orðið meiri en 521 tonn. Jafnframt var samið um svokallaðan sölukvóta sem er um það bil þriðjungur af því magni sem nefnt var hér að framan.

Á móti fá rússnesk fiskiskip 1.500 tonn af makríl og 2.000 tonn af kolmunna frá Íslandi sem þau geta veitt á alþjóðlegu hafsvæði. Þessar aflaheimildir eru teknar af þeim heildarafla sem Ísland hefur ákveðið í þessum tveimur fisktegundum.

Formaður íslensku samninganefndarinnar var Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, en formaður rússnesku sendinefndarinnar var S. Simakov, yfirmaður alþjóðamála hjá Sjávarútvegsstofnun Rússlands (Federal Russian Fisheries Agency).

S. Simakov og Jóhann Guðmundsson handsala samninginn.

Deila: