Ágætur rekstur loðnuvinnslunnar

Deila:

Aðalfundur Loðnuvinnslunnar h/f var haldinn 17. maí sl.  Hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta var 700 millj.  sem 135% hærra en 2018.  Hreint veltufé frá rekstri var 1.523 milljónir sem er 88% meira en 2018.

Tekjur LVF af frádregnum eigin afla voru  9.099 millj. sem er 24% veltuaukning milli ára.  Eigið fé félagsins í árslok 2018 var 7.955 millj.  sem er 54% af niðurstöðu efnahagsreiknings.  Stærsti hluthafinn er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 83% eignarhlut.

Samþykkt var að greiða 15% arð til hluthafa eða 105 milljónir.

Rekstur Loðnuvinnslunnar hefur verið ágætur síðustu ár, hagnaður hefur verið samtals 5,6 milljarðar síðustu 5 ár,  fjármunamyndun 7 milljarðar og eigið fé hefur vaxið úr tæpum 3 milljörðum í tæpa 8 milljarða.

Stjórn Loðnuvinnslunnar er þannig skipuð Elvar Óskarsson formaður, Steinn Jónasson, Högni Páll Harðarson, Elsa Sigrún Elísdóttir og Arnfríður Eide Hafþórsdóttir.

Varamenn Jónína Óskarsdóttir og Unnsteinn Kárason.

 

Deila: