Nýtt björgunarskip komið til Ísafjarðar

Deila:

Hið nýja skip Björgunarfélags Ísafjarðar kom í gærmorgun til hafnar. Sigldi það inn í höfnina í fylgd Gunnars Friðrikssonar. Höfðu skipin mæst við við strandstað Egils Rauða og siglt saman í átt að Sléttu þar sem Gísli var uppalinn.

Stýrimaður í heimferðinni var Ásgeir Guðbjartsson, barnabarn Ásgeirs heitins Guðbjartssonar skipstjóra sem tók einnig þátt í björgunarafrekunum ásamt m.a. Guðmundi Halldórssyni sem sigldi með Gunnari F. Í gærmorgun.
Mynd og texti af bb.is

Deila: