Sólberg keypti þorskveiðiheimildir í „Rússasjó”

Deila:

Sólberg ÓF keypti allar heimildir ríkisins sem í boði voru í þorski innan lögsögu Rússa í Barentshafi í sumar. Í boði voru 185 tonn og bárust alls þrjú tilboð. Tilboð Sólbergs var það eina sem tekið var og greiddi útgerðin samtals 157 tonn af þorski innan lögsögu Íslands.

Deila: