Mjaldrarnir koma til landsins í dag

Deila:

Mjaldrasysturnar Litla-Grá og Litla-Hvít eru lagðar af stað til Íslands flugleiðina frá Kína. Boeing 747-þotan sem flytur mjaldrana lagði af stað á fjórða tímanum í nótt, að íslenskum tíma, og er væntanleg hingað til lands um klukkan tvö í dag samkvæmt frétt á visir.is.

Er það örlítið seinna en upprunalega var gert ráð ráð fyrir, en það skýrist af smávægilegum breytingum á flugáætlun dagsins að sögn skipuleggjenda.

Stefnt hafði verið að því að systurnar kæmu hingað til lands í apríl en flutningunum var frestað vegna veðurs og slæmra aðstæðna í Landeyjahöfn. Áður en hvalirnir rata á endanlegan áfangastað sinn í Klettsvík við Vestmannaeyjar munu þeir dvelja í stórri hvalalaug til að venjast aðstæðum.

Með því að smella hér má fylgjast með flugi þotunnar sem flytur mjaldrana til landsins.

Deila: