Næg verkefni framundan

Deila:

Það gengur vel hjá nýjum skipstjóra á Hoffelli SU í upphafi makrílvertíðar. Í brúnni á Hoffelli situr Sigurður Bjarnason, nýráðinn skipstjóri,  og sigldi í land með 790 tonn af makríl á sunnudagskvöld.  Er þetta fyrsti makríltúr Sigurðar á Hoffellinu.  Þegar greinarhöfundur heimasíðu Loðnuvinnslunnar heyrði í Sigurði var Hoffellið úr af Berufirði og reiknaði skipstjórinn með að þeir yrðu í heimahöfn á Fáskrúðsfirði um kl. 20.30 sunnudagskvöldið 14.júlí.

Aðspurður sagði Sigurður að það hefði gengið vel. „Við vorum í tvo og hálfan sólarhring á veiðum og fengum þennan afla suðvestur af Vestmannaeyjum” sagði Sigurður.  Hann sagði að veðrið hefði verið gott, nokkur kaldi á leiðinni út en síðan bara blíða.  Hann sagði líka að skipið hefði reynst vel og áhöfnin væri góð. „Þetta eru flottir strákar og mér líst mjög vel á þetta allt saman,” bætti skipstjórinn við.  Löndun úr Hoffellinu hófst fljótlega eftir að það lagðist við bryggju og þegar aflinn var kominn í land var haldið á miðin á nýjan leik.

„Ég er mjög sáttur og  það eru næg verkefni framundan” sagði Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffellinu að lokum „og full ástæða til að óska honum og áhöfninni til hamingju með samstarfið,“ segir á heimasíðu LVF.

 

Deila: