Tilhlökkunarefni að fara að fiska á þetta skip

Deila:

Ný Vestmannaey VE  kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í dag og var vel tekið á móti skipinu. Í tilefni heimkomunnar ræddi heimasíða Síldarvinnslunnar stuttlega við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra og var fyrst spurt hvernig honum litist á nýja skipið.

„Mér líst afskaplega vel á þetta skip. Það er glæsilegt í alla staði og með miklum og góðum búnaði. Þegar skipið er borið saman við gömlu Vestmannaey blasir við fullkomnari aðstaða að flestu leyti. Má þar til dæmis nefna vinnuumhverfið á millidekki og í brúnni en þar er um mikla breytingu að ræða. Þá má nefna að í skipinu eru tvær vélar og tvær skrúfur og ég tel fullvíst að það hafi í för með sér meiri togkraft.

Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey VE. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson.

Skipið er einkar hljóðlátt. Það heyrist lítið í vélunum og öll spil eru knúin rafmagni. Þá er þetta skip sérstaklega mjúkt og fer vel með mannskapinn. Við fengum kaldaskít á leiðinni til landsins og upplifðum þá hvernig það fer í sjó. Það er svo sannarlega tilhlökkunarefni að fara að fiska á þetta skip en það mun ekki gerast fyrr en um mánaðamótin ágúst-september. Það á eftir að ganga frá búnaði á millidekkinu en sú vinna verður hafin í Vestmannaeyjum og síðan verður dekkið klárað í Slippnum á Akureyri“, segir Birgir Þór.

 

Upplýsingar um nýja Vestmannaey:

 

Lengd            28,9 m

Breidd          12 m

Brúttótonn  611

Nettótonn   183,4

Klassi           DNVGL+1A1

Aðalvél        2x Yanmar 6EY17W 294 kw

Hjálparvél    Nogva Scania DI13 HCM534CDE-1 1800/mín

Gír                2x Finnoy, hvor með sinn rafal. Skrúfáshraði 205/mín

Skrúfa          2x Finnoy, 2 m í þvermál. Silent fishing.

Hliðarskrúfa frá Brunvoll

Allar vindur rafdrifnar frá SeaOnics

Togvindur knúnar PM sísegulmótor

Löndunarkrani frá Aukra Marine

Autotroll frá Scantrawl

Skilvindur frá Westfalia

-tvær smurolíuskilvindur

-ein eldsneytisskilvinda

-ein austursskilvinda

Rafkerfi 440 volt 60 rið tvískipt, sb,bb

Flest tæki í brú frá Furuno

3D mælir frá Wasp

Skjákerfi og stjórnbúnaðarkerfi frá SeaQ

Rafkerfi frá Vard Electro

Björgunarbúnaður frá Viking

 

Deila: