50 grindhvalir drápust á Löngufjörum

Deila:

50 grindhvalir strönduðu í gær á Löngufjörum á Vesturlandi. Bandaríkjamaðurinn Greta Carlson náði myndskeiði af hvölunum eftir hádegi í dag þar sem þeir lágu í fjörunni. Hún, ásamt fleiri ferðamönnum, voru í þyrluflugi með ferðaþjónustufyrirtækinu Reykjavík Helicopters þegar þau komu að atvikinu. Greta segir í samtali við ruv.is, að þeir hafi allir verið dauðir þegar þau komu á vettvang, þetta hafi ekki verið fögur sjón. Lögreglan í Stykkishólmi staðfestir að þeim hafi borist ábending um atvikið.

Hún segir að þau hafi aldrei séð neitt þessu líkt. Rifa hefði komið á nokkra hvalaskrokkana. Hún hafi viljað ná myndum af atvikinu svo mögulega yrði hægt að koma í veg fyrir að svona kæmi fyrir aftur.

Edda Elísabet Magnúsdóttir sjávarlíffræðingur segir að það geti verið fjölmargar ástæður fyrir að hvalir villist inn á háskaleg svæði. Grindhvalir séu hópdýr með sterk félagstengsl og yfirgefi félaga sína ekki svo glatt.

Hún segir að sterkir sjávarfallsstraumar séu á þessu svæði og botninn þannig að erfiðara er fyrir dýrin að ná aftur til sjávar. Endurkast hljóðs sé lélegt á svæðinu, en grindhvalir nýti hljóð til þess að rata. Svo falli frá og þeir eru þá strandaglópar þarna.

 

Deila: