Vigdís heilsaði upp á Vigdísi

Deila:

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hitti nöfnu sína skilvinduna í fiskimjölsverksmiðju VSV á dögunum og urðu þar fagnaðarfundir sem fyrr samkvæmt heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Starfsmenn nefndu græjuna eftir Vigdísi á sínum tíma. Þá var hún á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn og lét til sín taka og enn meira gefur gustað um hana í seinni tíð sem Miðflokksfulltrúa á vettvangi borgarstjórnar.

Vigdís er ánægð með nöfnu sína í Eyjum. Á Fésbókarsíðu sinni hefur hún eftir ónafngreindum starfsmanni VSV að helsti kostur Vigdísar skilvindu sé sá að hægt sé að slökkva á henni en ekki á borgarfulltrúanum Vigdísi!

 

Deila: