Góður þorskafli fyrir norðan

Deila:

Ísfisktogarinn Akurey AK kom til hafnar á Sauðárkróki í gærmorgun með rúmlega 130 tonna afla. Þetta er í annað sinn sem togarinn kemur inn til löndunar á Sauðárkróki en aflanum er strax ekið suður yfir heiðar til vinnslu í Reykjavík.

Á þessum tíma árs hafa ísfisktogarar HB Granda aðallega verið að veiðum á Vestfjarðamiðum en Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey, segir í samtali á heimasíðu HB Granda, að þar hafi verið lítill sem enginn þorskur í allt sumar.

,,Það virðist vanta æti fyrir fiskinn á Vestfjarðamiðum. Þar er engin loðna og því leitar fiskurinn annað,“ segir Eiríkur en að hans sögn byrjaði hann að þessu sinni út með hrauninu norðan við Kolbeinsey en þangað er um átta til níu tíma sigling frá Sauðarkróki.

,,Þorskurinn var nokkuð dreifður en eftir að við fundum hann í veiðanlegu magni voru aflabrögð mjög góð. Við fórum út síðdegis á fimmtudag þannig að við náðum fjórum dögum á veiðum. Við enduðum veiðar svo á Sporðagrunni en þaðan er bara fimm tíma sigling til Sauðárkróks.“

Að sögn Eiríks var Viðey RE að veiðum á sömu slóðum en sá ísfisktogari er nú í sínum þriðja túr þar sem aflanum er landað á Sauðárkróki. Eiríkur og hans menn stoppa ekki lengi að þessu sinni því stefnt var að því að láta úr höfn kl. 16.

,,Við eigum að veiða þorsk og á meðan svo er þá er ágætt að gera héðan út. Það tekur ekki nema þrjá og hálfan tíma að aka aflanum til Reykjavíkur og þetta er því ferskt og gott hráefni,“ segir Eiríkur Jónsson.

 

 

Deila: