Er á norðurleiðinni

Deila:

,Við erum á leiðinni norður á Vestfjarðamið eftir að hafa tekið karfa- og ufsaskammtinn á okkar heimaslóðum. Markmiðið nú er að veiða þorsk. Það er reyndar bræla á Vestfjarðamiðum núna en veðrið á að ganga niður og vonandi verður komið ágætis veiðiveður þegar við komum á svæðið.“

Þetta sagði Friðleifur Einarsson (Leifur) skipstjóri á Helgu Maríu AK er rætt var við hann í gær á heimasíðu Brims.

Að sögn Leifs hófst veiðiferðin á Fjöllunum suðvestur af Reykjanesi.

,,Við vorum á Fjöllunum í hálfan annan sólarhring. Tókum ein tíu hol sem skiluðu um 75 tonna afla og þar með vorum við komnir með karfa- og ufsaskammtinn sem okkur var ætlaður. Gullkarfastofninn stendur sterkur en það er erfiðara að segja til með ufsann. Ufsinn er brellinn, kemur og fer en ef maður er á réttum stað á réttum tíma er hægt að fá mjög góða veiði.“

Leifur segir að þorskurinn á Vestfjarðamiðum sé vandveiddari nú en oftast áður.

,,Hann virðist koma og fara. Veiðin getur blossað upp einn daginn en svo er ekkert að hafa þann næsta. Almennt séð virðist þorskurinn hafa færst austar og skipin hafa gjarnan farið af Halanum austur á Strandagrunn í leit sinni að þorski. Svo er einhver þorskveiði úti fyrir Norðurlandi en skipin eru svo fá að það er erfitt að átta sig á útbreiðslunni,“ segir Leifur en hann reiknaði með því að vera kominn á veiðislóðina í nótt. Sennilega byrji hann veiðar í kantinum norðan við Víkurálinn og vinni sig norður eftir og endi á Halanum. Aflabrögð og veðrátta muni þó ráða mestu um framhaldið. Það eina sem er víst að Helga María á bókaðan löndunartíma í Reykjavík nk. mánudagsmorgun.

 

 

Deila: