Krefjast aukinnar línuívilnunar í ýsu

Deila:

Á aðalfundi LS var mikið rætt um þau vandræði sem komin eru upp varðandi línuveiðar á ýsu.  Mun meira er af ýsu á miðunum en vænta mátti útfrá tillögu Hafrannsóknastofnunar um heildarafla.  Hafrannsóknastofnun lagði til að dregið yrði úr afla á yfirstandandi fiskveiðiári um 16 þúsund tonn miðað við árið áður.  Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra varð við tillögum Hafró, lækkunin nam 28%.   Frá þessu er greint á heimasíðu LS

Í ræðu framkvæmdastjóra LS á aðalfundinum kom fram að veiðiheimildir í ýsu í krókaaflamarki væru nú þriðjungi lægri en í fyrra – 3.000 tonn.  Mikið veiddist hins vegar af ýsu þessa dagana og væri hlutfall hennar við þorskveiðar allt að 70%.  Það hefði þær afleiðingar að bátar væru að stöðvast þar sem enga ýsu væri hægt að fá á leigu.  Við samantekt á afla á fyrstu 40 dögum fiskveiðiársins, væri ýsuafli 15% meiri en í fyrra og rúmur fimmtungur heimildanna þegar veiddur.

Aðalfundur sendi frá sér eftirfarandi ályktun vegna þessa:

„Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda krefst þess að línuívilnun í ýsu verði 45% fyrir landbeitningu, 30% við uppstokkun og 15% fyrir vélabáta.“

Ákvörðun um leyfilegan heildarafla í ýsu byggist á aflaregla sem miðast við að heildarafli fari ekki umfram 35% af viðmiðunarstofni.  Viðmiðunarstofn í ýsu er skilgreindur útfrá lengd og inniheldur ýsu 45 cm og stærri á ráðgjafarári (framreiknað til 31. janúar 2020).  Tímabilið 2013-2018 var veiðihlutfallið 0,4.  Alþjóðahafrannsóknaráðið komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það samræmdist ekki varúðarsjónarmiðum og lagði til að hlutfallið yrði lækkað í 0,35 eða um 12%.  Stjórnvöld samþykktu að svo skyldi verða næstu 5 árin eða til og með fiskveiðiárinu 2023/2024.

Ástæða fyrir breyttri aflareglu var að ýsa yrði nú kynþroska eldri og stærri en áður sem orsakaði of lágt hlutfall milli hrygningarstofns og viðmiðunarstofns.

 

Deila: