Vilja greiða fyrir innflutningi til Kína

Deila:

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, átti í gær fund með Zhang Jiwen, vararáðherra Kína á sviði tollamála og eftirlits með innflutningi matvæla. Á fundinum lýstu Kínversk stjórnvöld yfir vilja til að auka enn frekar innflutning til Kína frá Íslandi, m.a. með því að greiða frekar fyrir innflutningi á sjávarafurðum, fiskimjöli, laxi og lambakjöti.

Kristján Þór er staddur í Kína til að sækja sjávarútvegssýninguna í  Qingdao í Kína en um er að ræða aðra af stærstu sjávarútvegsýningum í heimi og taka 11 íslensk fyrirtæki þátt í sýningunni í ár. Hann hefur jafnframt nýtt ferðina til að funda með stjórnvöldum í Kína, m.a. til að fylgja eftir fríverslunarsamning sem tók gildi milli landanna árið 2014.

„Ég mun á fundum mínum með stjórnvöldum í Kína leggja áherslu á frekari þróun fríverslunarsamningsins. Það er mikilvægt fyrir Ísland í ljósi þess að Kína er stærsti innflytjandi sjávar- og landbúnaðarafurða í heiminum og verð fyrir t.d. lax er hærra hér en á öðrum mörkuðum. Þá er jafnframt reiknað með að millistéttin í Kína muni stækka umtalsvert á komandi árum. Það er því gríðarstórt hagsmunamál fyrir Ísland að þessi samskipti gangi vel og það er því ánægjulegt að heyra vilja Kínverskra stjórnvalda til að greiða fyrir frekari innflutningi til Kína frá Íslandi,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

 

Deila: