Harðbakur afhentur
Harðbakur EA 3 hinn nýi togari Útgerðarfélags Akureyringa hefur verið afhentur eigendum sínum í Noregi. Í kjölfarið á uppgjöri við Vard-Aukra skipasmíðastöðina var Íslenski fáninn dreginn að húni og hélt skipið af stað til heimahafnar í gær. Áætlað er að siglingin heim taki um þrjá og hálfan sólarhring.
Skipstjóri á Harðbak er Hjörtur Valsson og yfirvélstjóri er Friðrik Karlsson.
Slippurinn á Akureyri tekur við skipinu þegar heim er komið og settur verður vinnslubúnaður um borð. Stefnt er að Harðbakur hefji veiðar í byrjun nýs árs.

Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri Útgerðarsviðs Samherja dró Íslenska fánann að húni í Aukra, í Noregi í morgun. Kolbrún Ingólfsdóttir eiginkona hans var honum til aðstoðar.