Nýr Cleopatra 50B beitningavélarbátur afgreiddur til Noregs

Deila:

Ólafur F. Einarsson útgerðarmaður á Myre í Noregi fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50B beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Ólafur var lengi í útgerð hér á landi ásamt föður sínum og föðurbróður, en fluttist til Noregs fyrir nokkrum árum.

Nýi báturinn heitir Einar. Báturinn er 15 metrar á lengd og mælist 32 brúttótonn.  Ólafur er einnig með í rekstri 2 aðra Cleopatra báta.  Ólafur verður sjálfur skipstjóri á nýja bátnum.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222TI 800 hestöfl (22L) tengd frístandandi ZF 665 V-gír.

Rafstöð er af gerðinni Scam/FPT/Linz 50kW (60kVA) frá Ásafli.

Glussarafall Scam 16kw (20kVA) frá Ásafli.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni frá Larsen Elecom AS.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða.  Beitningavél, rekkakerfi og línuspil er frá Mustad í Noregi.

Búnaður á dekki er frá Lavango og Stálorku.

Ísvél og forkælir er frá Kælingu ehf.

Löndunarkrani á er af gerðinni TMP500L frá Ásafli ehf.

Báturinn útbúinn andveltigýrobúnaði af gerðinni ARG375 frá Ásafli ehf.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir allt að 76 460 lítra kör í lest.  Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla fyrir 6 manns, stór borðsalur, salerni/sturta og þvottavél og þurrkari.  Svefnpláss er fyrir sex í lúkar í 4 aðskildum klefum.

Fullbúið eldhús er um borð með öllum nauðsynlegum búnaði,  s.s. eldavél, bakarofni, örbylgjuofni, ísskáp og uppþvottavél.

Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.

Bátnum var siglt yfir hafið til Noregs frá Hafnarfirði núna á dögunum og hefur þegar hafið veiðar í Noregi.

 

 

Deila: