Leggja til 214 tonna hámark á humarafla
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að humarafli ársins 2020 verði ekki meiri en 214 tonn svo fylgjast megi með stærðarsamsetningu og dreifingu stofnsins. Jafnframt leggur stofnunin til að allar humarveiðar verði bannaðar í Jökuldjúpi og Lónsdjúpi til verndar uppvaxandi humri.
Til að minnka álag á humarslóð ráðleggur Hafrannsóknastofnun að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi.
Stofnstærð humars í stofnmælingu 2019 lækkaði um 20% frá árinu 2016. Á sama tíma hefur veiðihlutfall minnkað úr 1.9% í 0.4%. Þéttleiki humarholna við Ísland (0.07 holur/m2) mælist nú með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf um. Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.
https://www.hafogvatn.is/is/veidiradgjof/humar