Hoffell með kolmunna

277
Deila:

Hoffell landaði kolmunna á Fáskrúðsfirði í lok síðustu viku, samtals 1.270 tonnum. Þessi kolmunni veiddist í Færeysku lögsögunni. Innan tíðar verður svo hugað að kolmunna á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi.

Hingað til hafa aðeins átta skip landað kolmunna samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu. Þau hafa sótt þann afla suður fyrir Færeyjar við illan leik vegna stöðugs óveðurs á svæðinu. Samkvæmt listanum er Hoffellið komið með 1.819 tonn, sem er tvöfalt meira en hjá næstu skipum. Þau hafa ýmist náð einum eða tveimur brælutúrum þarna suður frá.

 

Deila: