Máta sig í Grindavíkurhöfn

303
Deila:

Varðskipið Þór kom til Grindavíkur í morgun. Tilgangur með komu varðskipsins til Grindavíkurhafnar er að prufukeyra, í samvinnu við HS Veitur og Grindavíkurhöfn, landtenginu við skipið í spennistöð og dreifikerfi HS Veitna sem staðsett er við Miðgarð ásamt því að skipstjórnendur skipsins máti sig í innsiglingu og höfn.

Um er að ræða æfingu ef til þess kemur að koma þurfi á varaafli ef rafmagn fer af sveitarfélaginu í lengri tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem varðskipið kemur til Grindavíkurhafnar. Varðskipið var jafnframt í fyrsta skipti nýtt sem hreyfanleg aflstöð þegar rafmagn fór af Dalvík í óveðrinu í desember en Þór getur flutt 2MW af rafmagni í land.

Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

 

Deila: