Frækilegt björgunarafrek

„Á síðustu tveimur vikum hefur björgunarsveitin Þorbjörn átt stóran þátt í að bjarga tveimur mannslífum úr sjávarháska með slöngubát sveitarinnar! Fyrst við Grindavíkurhöfn í byrjun mánaðar og svo umrætt verkefni í gærkvöldi. Það er ótrúlega góður árangur sem næst fyrst og fremst með frábærum mannskap og góðum stuðningi frá fólkinu sem stendur okkur næst, þvílíkt lið sem við eigum!“
Svo skrifar Otti Sigmarsson, einn sveitarmanna í Björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík, um björgun manns á báti í sjávarháska við Voga í fyrrinótt. Færsla hans er annars svohljóðandi:
„Það eru örugglega fáir sem gera sér grein fyrir því hversu mikið afrek félagar í björgunarsveitinni Þorbirni unnu síðastliðna nótt þegar þeir komu hjálparlausum sjómanni til bjargar fyrir utan Voga. Í brjáluðu veðri og ólgusjó brunuðu þeir út úr hafnarmynninu í Vogum til hjálpar manni í lífsháska ómeðvitaðir um hvað biði þeirra, eins og svo oft áður. Þegar þeir fundu bátinn var ljóst að þeir gátu ekkert gert nema haldið sjó og beðið eftir stærri bát eða freista þess að taka manninn frá borði en slíkt er mjög hættulegt við þessar aðstæður. Fljótlega kom á vettvang stór frystitogari sem gat á engan hátt athafnað sig við bátinn sem var í vanda. Það voru því þrír einstaklingar á slöngubátnum Hjalta Frey frá Grindavík sem gegndu lykilhlutverki í því að hægt var að koma taug á milli og draga bátinn frá landi.
Eftir um klukkustund kom minna skip á vettvang til þess að leysa togarann af hólmi en það fór ekki betur en svo að hann fékk í skrúfuna við að athafna sig í kringum bátinn og þurfti frá að hverfa. Þá kom togarinn aftur að en þá var sjómaðurinn um borð alveg búinn á því og gat ekki meir, hann var örmagna. Drengirnir á Hjalta Frey tóku þá til sinna ráða og náðu með ólíkindum að koma einum úr hópnum um borð í bátinn. Aftur gegndi svo slöngubáturinn lykilhlutverki í því að koma taug á milli togarans og litla bátsins og mátti heldur betur litlu muna í þetta í skiptið, aðeins 0,4 sjómílur í land. Ákveðið var að draga bátinn svo til Hafnarfjarðar og fylgdi okkar maður bátnum alveg upp að bryggju þar.
Að mínu mati er hér um nokkuð frækilegt björgunarafrek að ræða þar sem þrautseigja, þjálfun og reynsla björgunarmanna skipti sköpum. Áhöfnin á slöngubátnum Hjalta Frey ásamt áhöfninni á togaranum Sóley Sigurjóns GK eiga gríðarlegt hrós og þakklæti skilið fyrir þetta frækna afrek og auðvitað allir hinir sem komu að verkefninu á einn eða annan hátt.“