Sex skip leita loðnu

245
Deila:

Sex skip eru nú haldin til loðnuleitar, fleiri en nokkru sinni fyrr, en þetta er þriðji leitarleiðangurinn frá áramótum. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson fer fyrir leitinni en jafnframt taka fimm veiðiskip þátt; Hákon EA, Heimaey AK, Polar Amaroq GR, Aðalsteinn Jónsson SU og Börkur NK.  Frá þessu er greint á visir.is

Árni Friðriksson leitaði undan Austfjörðum eftir að veiðiskipin luku leiðangri númer tvö. Leitin núna mun einkum beinast að Norðurlandi. Hákon leitar þó á Dohrn-banka á Grænlandssundi en þaðan hafa borist fréttir af loðnu.

Að sögn leiðangursstjórans Birkis Bárðarsonar gefa loðnutorfur sem fundust undan Norðurlandi í síðasta leiðangri tilefni til hóflegrar bjartsýni, en eftir hann var stærð loðnustofnsins metin 250 þúsund tonn. Það var mun skárra en eftir fyrsta leiðangur, sem mældi stofninn aðeins 64 þúsund tonn.

Birkir áætlar að finna þurfi 150 til 200 þúsund tonn til viðbótar svo unnt sé að mæla með veiðum. Hann vonar að niðurstöður liggi fyrir upp úr næstu helgi.

Fylgjast má með loðnuleitinni á rauntíma á vef Hafrannsóknastofnunar.

Deila: