Útbreiðsla hrognkelsis könnuð með merkingum

366
Deila:

Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi varðandi merkingar á hrognkelsum. Árið 2018 og 2019 voru  760 ungfiskar merktir í alþjóðlegum makríl leiðangri norður og suður af Íslandi og við austurströnd Grænlands.   Ekki er vitað til þess að ungviði hafi áður verið merkt með þessum hætti  en  endurheimtur geta gefið mjög mikilvægar upplýsingar um vöxt hrognkelsa og hvert þau ganga til hrygningar.

Staðsetning merktra hrognkelsa í makríl leiðangri árið 2019. Appelsínugulir punktar sýna staðsetningu merkingarstaðar og endurheimtustaðar þeirra fjögurra fiska merktir voru 2018 en endurheimtust árið 2019.

 

Þeir sem kunna að veiða merktan fisk eru vinsamlegast beðnir um að hringja í númerið sem er á merkinu (896-7977) og tilkynntu staðsetningu. Ekki fjarlægja merkið en koma fiskinum sem fyrst í frysti og í kjölfarið verður reynt að nálgast hann. Verðlaun verða einungis greidd ef fiskurinn skilar sér í heilu lagi og merkið er enn  í honum.

Greiddar verða 5.000 krónur fyrir hvern  fisk sem berst í heilu lagi til BioPol á Skagaströnd. Einnig fær sendandi upplýsingar um hvar og hvenær fiskurinn var merktur.

Í umræddum makrílleiðangri hafa hrognkelsi veiðst sem meðafli í efstu lögum sjávar á hafsvæði sem nær frá austur Grænlandi, allt í kringum Ísland og norður með Noregi. Myndin sýnir útbreiðslu fiskana sem fengust í leiðangrinum sumarið 2019.  Ekki er ljóst hvar þessi fiskur mun hrygna og hversu mörgum árum hann eyðir á þessum slóðum áður en hann kemur til hrygningar.

Endurheimtur á merktum fiskum munu hugsanlega hjálpa til við að svara þessum spurningum.

 

Deila: