Minni afli það sem af er fiskveiðiárinu

236
Deila:

Heildarafli íslenska flotans þegar fiskveiðiárið 2019/2020, sem hófst 1. september 2019, var  hálfnað nam rúmlega 420 þúsund tonnum upp úr sjó. Til samanburðar var aflinn á sama tímabili í fyrra rúm 496 þúsund tonn. Þetta er samdráttur í heildarafla milli fiskveiðiára sem nemur um 15% eða um 76 þúsund tonnum samkvæmt frétt á heimasíðu Fiskistofu.

Samdráttur í botnfiskafla nam um 26 þúsund tonnum en af því  var samdráttur upp á um 6 þúsund tonn  í þorski og annað eins í ýsu.  Botnfiskaflinn er rúmlega 10% minni en á sama tímabili á fyrra fiskveiðiári. Almennt er kvótastaðan í bolfiski í góðu jafnvægi og heldur rýmri en á fyrra fiskveiðiári, sérstaklega hjá krókaaflamarksbátum sem einungis hafa notað rúm 44% aflaheimildanna þegar árið er hálfnað.

Mesti samdrátturinn hefur verið í uppsjávarafla eða sem nemur ríflega 20% eða um 50 þúsund tonnum. Nokkur aukning var í síld en samdráttur var upp á 20 þúsund tonn í kolmunna og rúm 38 þúsund tonn í makríl, en  seinni hluti makrílvertíðarinnar ár hvert nær inn á fyrstu mánuði nýs fiskveiðiárs.

Efra stöplaritið hér að neðan sýnir að botnfiskveiðar voru lélegri en á fyrra fiskveiðiári í október og nóvember sl. en þó sérstaklega í janúar þegar veiðin dróst saman um 17 þúsund tonn. Væntanlega  var erfitt veðurfar í upphafi ársins  þar helsti  orsakavaldurinn.

Þá má sjá af seinna stöplaritinu yfir heildaraflann að aflabrögð um haustið og í upphafi almanaksársins voru töluvert lélegri en á fyrra fiskveiðiári. Auk veðurfarsins í janúar er helsta skýringin væntanlega léleg veiði í uppsjávarfiski öðrum en síld eins og lýst er hér að ofan.

 

 

Deila: