Á Vopnafirði í fyrsta sinn

160
Deila:

 

Það vakti töluverða athygli þegar varðskipið Þór sigldi inn í Vopnafjarðarhöfn í síðustu  viku. Áhöfnin var á æfingu og fór tvær ferðir inn höfnina en lagðist ekki að bryggju. Þetta var í fyrsta sinn sem varðskipið Þór sést í höfninni á Vopnafirði.

Skólakrakkar í bænum óskuðu eftir því að skipsflautan yrði þeytt og að sjálfsögðu varð áhöfnin á Þór við því. Landhelgisgæslunni bárust svo þessar einstaklega skemmtilegu loftmyndir af varðskipinu í höfninni í blíðunni.

https://youtu.be/nfgWeO18YRA

 

 

Deila: