Rúm 5.000 tonn af kolmunna til Vopnafjarðar

179
Deila:

Víkingur AK og Venus NS komu bæði til Vopnafjarðar í síðustu viku með samtals rúmlega 5.000 tonn af kolmunna. Afli Víkings var um 2.550 tonn en Venus var með rúmlega 2.600 tonna afla.
Heimasíða Brims náði tali af Hjalta Einarssyni, skipstjóra á Víkingi AK, en skipið var þá á sínu öðru holi í veiðiferðinni sunnarlega í færeysku lögsögunni. Að sögn Hjalta kom Víkingur á miðin frá Vopnafirði í gærmorgun.
,,Það er togað lengi eða í um 20 tíma í senn og aflinn í fyrsta holinu var um 330 tonn. Kolmunninn virðist ganga rólega hingað norður eftir og aflinn er mjög misjafn. Albert Sveinsson var með skipið í síðustu veiðiferð og mér skilst á honum að það hafi fengist frá um 200 tonnum og upp í 580 tonn í holi. Reyndar þurftu menn að bíða lengi eftir því að kolmunninn skilaði sér inn í færeysku lögsöguna og skip Brims biðu t.a.m. í heila viku á miðunum áður en menn urðu varir við kolmunna í veiðanlegu magni,” sagði Hjalti Einarsson.
Mikill fjöldi skipa er nú á kolmunnaslóðinni í færeysku landhelginni. Auk Íslendinga eru það aðallega skip heimamanna og Rússa, auk eins grænlensks skips, sem hafa stundað veiðarnar.

 

 

Deila: