Mikill áhugi á sjávarútvegssýningu Fishfacts á netinu

263
Deila:

Nýlega bárust fréttir um gagnabankann Fishfacts og Færeyingana Óla og Hanus Samró sem skipuleggja stærstu sjávarútvegssýningu heims á netinu. Þeir höfðu bókað þátttöku á sýningunum Havfisk í Bergen og Norfishing í Tromsö, en báðum sýningum var aflýst vegna Covid-19 faraldursins.

Þar sem ekkert varð úr neinum sjávarútvegsýningum í vor og sumar, ákváðu þeir að skipuleggja sína eigin sjávarútvegssýningu á netinu.
„Ég er eiginlega alveg orðlaus yfir því hve áhuginn á sýningunni er mikill. Við höfum þegar fengið staðfestar skráningar um þátttöku 17 þjónustufyrirtækja. Það kann kannski ekki að virðast mikið, en þegar tekið er tillit til þess að við kynntum sýninguna fyrst í síðustu viku, finnst mér þetta vera stórkostlegur árangur,“ segir Hanus Samró, annar eigenda Fishfacts.com og sölustjóri þess.

Sýningin á netinu fer fram eins og venjuleg sýning með sýningarbása og fundi. „Það sem kemur mér mest á óvart eru viðbrögðin frá skipstjórunum. Þeir sem eru úti á sjó að veiðum. Þeir eru sérstaklega ánægðir með að geta tekið þátt í raunverulegri sýningu á netinu á sama tíma og þeir sitja í brúnni úti á sjó. Þeir eru mjög áhugasamir um allt það nýjasta sem er að gerast í tækniheiminum. Og það er auðvelt, því auk þess að vera með bása á sýningunni, geta sýnendur efnt til streymis á netinu og netsamtala,“ segir Hanus.

Fleiri en 400 fiskiskip nota nú gagnabankann Fishfacts, allt frá Svalbarða í norðri  til Suðurheimskautslandsins í suðri og frá Kanada í vestri til Okhotskhafs í austri. Fishfacts hefur á tiltölulega stuttum tíma náð að skapa vettvang sem gerir það kleift að tengja saman sjávarútveginn og þjónustufyrirtækin.

„Þetta er fyrsta sjávarútvegssýning í heiminum, sem haldin er á netinu. Vissulega eru alltaf einhverjar efasemdaraddir, en við höfum til allrar lukku fengið leyfi frá nokkrum notenda okkar til að vísa á þá. Það eru einnig margir sem hugsa um að tengjast okkur og þeir hlakka til sýningarinnar okkar. Margir spyrja hverjir það séu, sem eru að nota gagnabankann okkar. Við getum auðvitað ekki haft allt opið, en við getum til dæmis staðfest að nokkrir, því við höfum fengið samþykki fyrir því, sýnendur hjá okkur munu komast í samband við nokkra af stærstu fiskiskipum í Norður-Atlantshafi svo sem Gitte Henning, Gerda Marie, Aðalstein Jónsson, Avataq, Akraberg og Enniberg. Skipstjórnir hafa nefnilega staðfest „komu“ sína á sjávarútvegssýninguna okkar á netinu 9. til 10. júní, segir Hanus Samró.

Sjá sýningarplan og fleiri upplýsingar á https://expo.fishfacts.com/

 

 

 

Deila: