Mega hefja veiðar á mánudag

218
Deila:

Fiskistofa vekur athygli á að þeir sem hyggjast hefja strandveiðar á mánudaginn 4. maí þurfa að ganga frá umsókn um veiðileyfið til  Fiskistofu í gegnum Ugga fyrir kl. 15 í dag fimmtudaginn 30. apríl og greiða greiðsluseðilinn fyrir leyfið í heimabanka í síðasta lagi fyrir kl. 21 í kvöld 30. apríl.

Þeir sem það gera fá aðgang að veiðileyfi sínu undir  “Mín mál”  í Ugga sem verður aðgengilegt þar frá 1. maí.
Umsóknir og greiðslur sem verða seinna á ferðinni en að ofan er lýst fá  veiðileyfi frá og með þriðjudeginum 5. maí (eða síðar sé þess óskað í umsókninni) og mega því ekki fara til veiða á mánudaginn.

Deila: