Ný námsbraut með áherslu á fiskifræði

139
Deila:

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands hafa undirritað, samstarfssamning um nýja námsbraut til meistaragráðu í sjávar- og vatnalíffræði með áherslu á fiskifræði.

Aðspurður sagði Sigurður Guðjónsson að hið nýja meistaranám væri mjög mikilvægt fyrir framtíð þessara fræðigreina hér á landi. Einnig væri ánægjulegt að líta til þess að með samningnum muni samstarf Hafrannsóknastofnunar og Háskóla Íslands í rannsóknum og kennslu styrkjast enn frekar. Þannig nýtist rannsóknaaðstaða stofnunarinnar, rannsóknastofur, eldisstöðvar og rannsóknaskip enn betur og nemendur fá betri og aukin tækifæri til rannsókna í sínu námi.

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

 

Deila: