Breski matvælarisinn Morrisons kaupir tækni frá Skaganum 3X

280
Deila:

Morrisons, ein stærsta verslanakeðja Bretlands með yfir 550 verslanir og er auk þess leiðandi
framleiðandi á fiski og öðru sjávarfangi til breskra neytenda, hefur fest kaup á SUB-CHILLING ™
tækninni frá Skaganum 3X og verður fyrsta fyrirtækið til að nýta þessa byltingarkenndu tækni á
Bretlandsmarkaði. Auk SUB-CHILLING™ hefur Morrisons fest kaup á RoteX™ uppþýðingarkerfi fyrir
frystar afurðir og lausn sem vinnur marning og sundmagahryggi. Heildarsöluverð búnaðarins er um
300 miljónir króna.
SUB-CHILLING ™ kerfið er hannað og þróað af Skaganum 3X og notar sérhæfða tækni sem viðheldur
upprunalegum gæðum afurðar og eykur einnig geymsluþol. Fiskurinn er kældur niður í mínus eina
gráðu en til samanburðar verður fiskur kældur með ís aldrei kaldari en um frostmark. Ávinningurinn
eru stífari flök til vinnslu án frumuskemmda vegna ískristallamyndunar og þannig lengist geymsluþol
afurðarinnar.
Aukin gæði
Áætlað er að uppsetningu búnaðarins ljúki í júlí 2020 í verksmiðju Morrisons í Grimsby í Englandi.
Kerfið mun viðhalda gæðum og lengja geymsluþol á þeim 20 þúsund tonnum af hvítfisk og laxi sem
Morrisons framleiðir árlega
Tímamótasamningur á Bretlandseyjum
Ragnar A. Guðmundsson, sölustjóri hjá Skaganum 3X, segir, „Það er mikið ánægjuefni að fyrirtæki líkt
og Morrissons ákveður að hækka gæðakröfur sínar með því að velja SUB-CHILLING™ tækni okkar.
Það skref var stigið eftir sameiginlegar rannsóknir okkar í febrúar. Þrátt yfir Corona-veiruna tókst
okkur að ná saman um þessi viðskipti og er ætlun okkar að óbreyttu að ljúka uppsetningu í júlí. Frá
því að við afhentum fyrsta SUB-CHILLING™ kerfið árið 2014 hefur markaðurinn smám saman áttað
sig á hverju það getur áorkað. Mörg fyrirtæki hafa bæst í hópinn og viðræður standa yfir við nokkur
önnur fyrirtæki. Við trúum því að ofurkælt hráefni verði viðmið markaðarins fyrr en varir.“

Ragnar-A.-Gudmundsson-Sölustjóri-Skaginn-3X-og-Peter-Nickson-framkvæmdarstjóri-fiskihlutans-hjá-Morrisons

Deila: