Ögmundi afhent skipunarbréf

240
Deila:

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur afhent nýjum Fiskistofustjóra, Ögmundi Knútssyni, skipunarbréf.

Ögmundur var skipaður Fiskistofustjóri á dögunum úr hópi fjölmargra umsækjanda og hefur þegar hafið störf hjá Fiskistofu á Akureyri.

Fiskistofustjóri er skipaður í embættið til fimm ára, en hlutverk Fiskistofu er að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafs og vatna. Í umsögn hæfnisnefndar segir meðal annars: Ögmundur hefur öðlast víðtæka háskólamenntun sem nýtist í starfi og menntun og starfsreynslu sem tengist sjávarútvegi og stjórnsýslu á vettvangi háskóla og verkefna sem tengjast þeim störfum. Að mati hæfnisnefndar uppfyllir Ögmundur allar menntunar- og hæfniskröfur vel og telst því vel hæfur til þess að gegna embætti Fiskistofustjóra.

 

Deila: