Sú nýja og gamla

135
Deila:

Nýja Vestmannaey VE sigldi inn í Vestmannaeyjahöfn á þriðjudag með fullfermi af fiski að aflokinni 48 stunda veiðiferð. Á meðfylgjandi mynd sést þegar skipið siglir fram hjá slippnum en í honum er einmitt gamla Vestmannaey, sem bar reyndar nafnið Smáey síðustu mánuðina.

Þorbjörn hf. í Grindavík hefur fest kaup á gömlu Vestmannaey og í slippnum er verið að mála skipið með litum hins nýja eiganda. Þorbjörn hf. fær skipið afhent í næstu viku og mun það fá nafnið  Sturla.

Gamla Vestmannaey var smíðuð í Póllandi árið 2007 en nýja Vestmannaey kom til landsins í júlímánuði sl. Nýja skipið var smíðað í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi ásamt systurskipinu Bergey.
Ljósmynd Arnar Richardsson

 

Deila: