Persónuleg herferð

Guðmundur Kristjánsson, sem tilkynnti fyrir viku að hann hafi ákveðið að láta af störfum sem forstjóri útgerðarfélagsins Brims, segist hafa tekið þá ákvörðun vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á yfirráðum Útgerðarfélags Reykjavíkur og tengdra aðila í Brimi. Hann segist upplifa rannsóknina sem persónulega herferð gegn sér. Þess vegna hafi hann talið best fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess að hann léti af störfum sem forstjóri. Þetta kemur fram í frétt á ruv.is, en Guðmundur var í samtali í Kastljósi sjónvarpsins í gærkvöldi.
Samkeppniseftirlitið ætlar að hefja sjálfstæða rannsókn á yfirráðum Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila í Brimi hf. Þetta kom fram í tilkynningu Brims til Kauphallarinnar, en tilkynnt var um rannsóknina samhliða því að Samkeppniseftirlitið ákvað að aðhafast ekkert frekar í kaupum Brims á Fiskvinnslunni Kambi hf. og Grábrók ehf.
Í tilkynningunni segir að Samkeppniseftirlitið ætli að rannsaka hvort stofnast hafi til yfirráða Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila í Brimi vegna viðskipta Útgerðarfélagsins í fyrra. Samkeppniseftirlitið telur að viðskiptin, sem tengjast eignarhlut Útgerðarfélagsins í Brimi, hafi verið til þess fallin að hafa áhrif á mat á yfirráðum í félaginu í skilningi samkeppnislaga.
Guðmundur var gestur Kastljóss í gærkvöldi. Þar sagðist hann upplifa rannsókn Samkeppniseftirlitsins sem persónulega herferð gegn sér.
„Já ég upplifi það þannig. Og mig langaði til að fara í stríð við þá. En skynsemin sagði mér að það væri ekki vit í því. Og ég er orðinn það gamall núna, en kannski fyrir mörgum árum hefði ég tekið slaginn við þá. En skynsemin sagði mér að það væri betra að fara til hliðar og láta fyrirtækið halda áfram og halda áfram með lífið.“
En þú munt hafa einhver ítök í stjórninni?
„Já ég er ekkert hættur í sjávarútvegi,“ sagði Guðmundur, en hann verður áfram stærsti eigandi Brims og situr áfram í stjórn félagsins.
Guðmundur sagðist í viðtalinu ekki skilja hvers vegna Samkeppniseftirlitið væri að rannsaka fyrirtæki sem stæðu fyrst og fremst í samkeppni á erlendri grundu. Þá sagðist hann ekki upplifa spillingu í íslenskum sjávarútvegi.
Hér má sjá viðtalið við Guðmund í heild sinni.