Þorskurinn farinn að ganga út á togslóð eftir hrygningu

213
Deila:

Drangey SK2 er komin til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 213 tonn.  Heimasíða Fisk Seafood hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra

„Við vorum rúmlega fimm sólarhringa á veiðum, á Selvogsbanka og Eldeyjarbanka.  Við fengum góðan dag á Selvogsbanka í upphafi en síðan varð róleg veiði, þá kipptum við vestur á Eldeyjarbanka þar var vaxandi veiði.  Fyrst var aflinn aðeins blandaður en síðan var nánast hreinn þorskur sem fékkst.  Þorskurinn er farinn að ganga út á togslóð eftir hrygningu.  Veður hefur verið gott,“ segir Ágúst.

Deila: