Gitte Henning landar 3.400 tonnum

Færeyska uppsjávarskipið Gitte Henning 1 slær hvert metið á fætur öðru. Fyrir nokkru landaði skipið 3.300 tonnum af kolmunna í Killybegs á Írlandi og um helgina landaði Gitte 3.400 tonnum af kolmunna í Noregi. Ekkert uppsjávarveiðiskip á norðurslóðum hefur landað svo miklum afla eftir eina veiðiferð. Fyrra metið átti Slaaterøy, sem áður hét Ruth, en það var 3.200 tonn.
Frá þessu er sagt á síðunni fiskur.fo Þar kemur fram að verðmæti aflans, sem landað var í Noregi hafi verið rúmar 11 milljónir norskra króna, sem svarar til 158 milljóna íslenskra króna. Gitte Henning hefur verið á kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni eins og íslensku uppsjávarskipin.