Marel kaupir eigin hluti

126
Deila:

Marel hf. keypti í síðustu viku 794.151 eigin hluti að kaupverði 517.642.173 krónur.  Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.

Marel hf. átti 18.195.659 eigin hluti fyrir viðskiptin og átti að þeim loknum 18.989.810 eigin hluti, að teknu tilliti til sölu á eigin hlutum til að uppfylla skilyrði kaupréttarsamninga, eða sem nemur 2,46% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 10.240.996 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,33% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 5.769.635.809 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.

 

Deila: