Afli og aflaverðmæti dregst saman

145
Deila:

Heildarafli íslenskra skipa var rúm 178 þúsund tonn á fyrsta ársfjórðungi 2020 sem er 25% minni afli en á sama tímabili árið 2019. Aflasamdráttur varð í nær öllum fisktegundum.

Aflaverðmæti fyrstu sölu var tæpir 34,2 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2020 sem er samdráttur um 5,6% miðað við sama tímabil 2019. Verðmæti botnfisktegunda nam um 31,5 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi og stendur í stað á milli ára þrátt fyrir 9% samdrátt í aflamagni.

Hagtölur sem birtast í þessari fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á gögnum um verðmæti fyrstu sölu landaðs afla sem Fiskistofa safnar saman.

Afli og aflaverðmæti á fyrsta ársfjórðungi 2019–2020
Tonn/milljónir króna Aflamagn, janúar – mars Aflaverðmæti, janúar – mars
  2019 2020 % 2019 2020 %
Samtals 238.669 178.456 -25 36.214 34.178 -6
Botnfiskur 136.601 124.209 -9 31.463 31.489 0
Þorskur 82.861 79.203 -4 20.885 22.125 6
Ýsa 19.296 13.661 -29 4.717 3.277 -31
Ufsi 14.922 12.050 -19 2.023 1.947 -4
Karfi 12.407 12.999 5 2.678 3.127 17
Annar botnfiskur 7.115 6.296 -12 1.160 1.013 -13
Flatfiskafli 4.763 2.851 -40 1.985 1.185 -40
Uppsjávarafli 96.202 50.897 -47 2.587 1.392 -46
Síld 0 0 55 66 19
Loðna 0 0 0 0
Kolmunni 94.856 49.403 -48 2.531 1.326 -48
Makríll 0 0 0 0
Annar uppsjávarafli 0 0 0 0
Skel- og krabbadýraafli 1.103 498 -55 180 112 -38
Humar 3 3 12 2 3 31
Rækja 389 263 -32 119 79 -34
Annar skel- og krabbadýraafli 28 1 -97 58 30 -48
Annar afli 0 0 0 0

 

Deila: